Fréttir og Tilkynningar
Aðalfundur 2024
Aðalfundur Gigtarfélags Íslands verður haldinn í nýjum húsakynnum félagsins að Brekkuhúsum 1, í Grafarvogi, þriðjudaginn 14. maí 2024 kl. 19.30. Að loknum aðalfundarstörfum flytur Gerður Gröndal gigtarsérfræðingur fyrirlestur
Lesa meiraVatnsleikfimi í Hátúni
Stefnt er að opnun sundlaugarinnar í Hátúni 12 (Sjálfsbjargarhúsinu) í byrjun maí og verður Gigtarfélagið með vatnsleikfimi þar síðdegis á mánudögum og miðvikudögum.
Ætlunin er að vera með tvo hópa, þann fyrri klukkan 16:15 og þann síðari klukkan 17:00.
Setjum hér inn upplýsingar um dagsetningar námskeiðs og þátttökugjald þegar það liggur fyrir. Nánari upplýsingar um leikfimina má sjá hér
Skráning í vatnsleikfimina er á skrifstofu Gigtarfélagsins, í síma 530 3600 eða með skeyti á netfangið gigt@gigt.is
Vatnsleikfimin er opin fyrir alla.
Vatnsleikfimi í apríl og maí
Vatnsleikfimi hefst aftur 4. apríl í innilaug á Grensás. Hópurinn verður á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 15:15.
Sjá nánar hér: Upplýsingar og verð
Lesa meira