Upplýsingar um Fjölvefjagigt?

Spurning:

Mig langar að vita hvort að það séu til einhverjar opinberar skýrslur eða gögn um rannsóknir og meðferðarúrræði um fjölvefjagigt hér á Íslandi og hvar þá væri hægt að nálgast þau? Það virðist vera svo mismunandi meðhöndlun á fjölvefjagigtar­sjúk­ling­um milli landa, t.d. virðast sterar vera mikið notaðir hér á landi, með góðum árangri, en sú meðferð þekkist kannski ekki mikið annarsstaðar og þá af hverju? Eru læknar ekki alltaf á ráðstefnum til að bera saman bækur sínar? Til að mynda á Spáni, virðist sem þeir kannist ekkert við að notaðir séu sterar við fjölvöðvagigt.

Vonast til að fá einhver svör.

Kveðja.

Svar:

Það er ekki alveg ljóst á spurningu þinni hvorn tveggja sjúkdóma þú ert að spyrjast fyrir um.

Annarsvegar er vefjagigt (fibromyalgia). Við þeim sjúkdómi eru sterar mjög sjaldan notaðir og telja flestir gigtarséfræðingar að það skili ekki árangri þar sem liðbólgur fylgja ekki þessum sjúkdómi. Einstöku sérfræðingur gefur stera í háum skömmtum í æð til að minnka vöðvabólgur og festumein, mest til að minnka einkenni og auðvelda viðkomandi að sinna þjálfun og brjóta upp vítahring verkja. Um þetta hefur lítið sem ekkert verið skrifað og vafi á að hægt sé að finna rannsóknir þessu að lútandi. 

Hinsvegar er fjölvöðvagikt (Polymylagia Rheumatica). Þarna er á ferðinni sjúkdómur sem einkennist af verkjum og slappleika í stórum vöðvum t.d. í upphandleggjum og lærvöðvum. Blóðmynd sýnir oftast hátt langtímabólgugildi í blóði (sökk) og oftast einnig blóðleysi. Þessi sjúkdómur kemur oftast ekki fram fyrr en vel yfir miðjan aldur og er mun algengari hjá konum en körlum. Meðferðin við þessum sjúkdómi er undan­tekningarlítið sterar (predisolon eða annað samheitalyf) eins hefur lyf af flokki krabba­meinslyfja, Methotrexate, verið notað samhliða sterum. Meðferðin hefst vana­legast með háum skömmtum af sterum sem eru svo minnkaðir hratt fyrstu mánuðina niður í lágmarksskammt (5mg) sem getur varað í fleiri mánuði jafnvel einhver ár.

Það er mjög ólíklegt að sérfræðingar í ónæmis- og gigtarsjúkdómum hvar sem er í heiminum kannist ekki við þessa meðferð við fjölvöðvagigt og það ætti að vera aðgengi að umfjöllun um þetta efni á netinu undir leitarorðinu POLYMYALGIA.  Það er ekki til mikið lesefni um þennan sjúkdóm þ.e. fjölvöðvagigtina á Íslensku en í blaði Gigtarfélagsins, Gigtinni, 2. tbl. 2005, er grein um fjölvöðvagigt og einnig er hægt að nálgast greinina á gigt.is, aðra umfjöllun er hægt að nálgast á doktor.is og hi.is.

Ef þig vantar meiri upplýsingar sendu okkur endilega frekari fyrirspurn.

Kveðja, Gigtarlínan.