Næstu námskeið hefjast 16. og 17. feb og standa í sex vikur.
Tíminn hefst á vaxmeðferð fyrir hendur og slökun, síðan eru gerðar liðkandi og styrkjandi æfingar fyrir hendur og fingur.
Guðbjörg Guðmundsdóttir iðjuþjálfi leiðir námskeiðið.
Tímar sem eru í boði:
Þriðjudaga kl. 11:00 eða kl. 12:30
Miðvikudaga kl. 11:00 eða kl. 12:30
Ef þú ert með beiðni frá lækni um iðjuþjálfun er kostnaður í samræmi við gjaldskrá SÍ. Án beiðni kostar námskeiðið:
17.500 kr. fyrir félagsmenn
29.200 kr. fyrir utan félags ( hafið samband við skrifstofu fyrir skráningu )